föstudagur, apríl 30, 2004

Núna er ég búin með verkefnið í sjónrænni Mannfræði. Það er 10 000 orð. Díses. Held að ég hafi aldrei gert svona langt verkefni.

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Má manns æla á skólann núna? Ég er komin með SSSVVVVOOO mikið ógeð á þessu að það hálfa væri nóg!
Held að ég sé orðin steikt á því að sitja fyrir framan tölvuna. Best að fara að drífa sig heim.
Ég er að borða snakk núna. 530 Kcal verða innbirtar í formikartöfluflaga áður en ég fer heim.
Klukkan er hálf tvö og aftur er ég að byrja að skrifa. Í morgun var ég að passa Magnús Ingvar. Mamma hans þurfti aðeins að skreppa í burtu svo að ég var að passa hann á meðan.
En núna er það bara að skella sér í að klára þetta verkefni :) Skemmtó skemmtó. Vííí. Vúbbí búbbí

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Myndir

Langaði bara að segja að hér eru komnar nokkrar myndir af mér og mínum og svo auðvitað af nýju íbúðinni okkar Gunnars
launch.yahoo.com er snilld. Ókeypis útvarp á netinu. Kostar náttúrulega fullt að hlusta heima, en hérna uppi í skóla er þetta ókeypis snilld.
Mig langar ÓTRÚLEGA mikið að vera úti í góða veðrinu, þrátt fyrir að það sé bara sjö gráðu hiti úti. Gaman að vera vinsæll hjá einhverjum. Takk takk
Klukkutíma síðar er ég búin með tvær og hálfa blaðsíðu sem þýðir að ég á eftir að skirfa þrjár og hálfa í viðbót. Held nú bara að ég rúlli þessu upp :)
Núna er klukkan að verða tvö og ég er að fara að byrja að skrifa. Ég sit sem sagt við tölvu í Odda og er að fara að pikka inn verkefnið mit tí sjónrænni. Núna er búið að fara 1000 sinnum inn á síðuna mína síðan ég setti teljarann af stað. Ég held að síðan mín sé ekki vinsæl.

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Commentið á síðuna mína
Var á fyrirlestri áðan. Dvaid Kahn var að halda fyrirlestur um rannsókn sem hann og félagi hans gerðu á hospice fólki. Það er krabbameinssjúklingum sem að eru að fara að deyja og meðferð á þeim er hætt. Mjög athygglisverður fyrirlestur og það er nú bara spurning um að vitna í hann í BA ritgerðinni minni. Skemmtilegt skemmtilegt.
Fór á Bókhlöðuna í morgun. Díses kræst, það voru engin bílastæði og ég þurfti að leggja hjá Háskólabíó. Díses maður. Að sjálfsögðu voru engin borð en það var svo sem allt í lagi vegna þess að ég þurfti ekki borð. Ég var að skoða eina ritgerð og ná mér í bækur. Núna er ég í Odda að læra. Er í tölvunum á 3. hæð ef að einhverjum vantar félagsskap :)

mánudagur, apríl 26, 2004

Fór í gymmið áðan, í fyrsta skipti í viku!! Fór í hörku Attack tíma hjá Helgu Dögg, en þar sem ég er ekki búin að fara í viku ákvað ég að nú skildi tekið á því. Fór í Step beint á eftir Attackinu. Úff púff. Varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég sá að Unnur var ekki að kenna, heldur einhverjar 2 gellur. Þær voru nú samt alveg góðar, tóku 2 aukalög sem voru ekki body step, heldur bara púl: Sem sagt geðveikt fjör. Held að ég eigi eftir að deyja á morgun.
Sá þessa frétt á mbl.is áðan:

Nú fer sá tími í hönd að notkun reiðhjóla eykst til muna. Á sunnudag var tilkynnt um að tvö börn, þriggja og hálfs árs og fjögurra ára væru týnd. Þau höfðu farið út að hjóla með afa sínum en hjólað það greitt að afinn sem er hjartveikur gat ekki fylgt þeim eftir. Börnin fundust skömmu síðar heil á húfi.
Ég ætla að fara í Attack á eftir. Vonandi verður stuð. Ég veit að það verður stuð. En þar sem minns er veikur þá er ekki alveg víst að ég verði í geðveiku stuði. Vonandi samt. Ég þoli ekki að vera veik. Ég er svo sem ekkert veik, bara pínu slöpp og með nebbakvef!

sunnudagur, apríl 25, 2004

Ég er að fara á fyrirlestur á þriðjudaginn næsta. Hann fjallar um dauðann og virðist vera mjög áhugaverður: Sjá hér. Er einhvern sem langar að koma með?
Eða sko kannski á ég soldið eftir, ég ég á ekki eftir að skrifa neinn kafla eða svoleiðis :)
Held að ég sé eiginlega búin með BA ritgerðina mína. Á bara eftir að gera pínu :)
Þegar ég fór á fætur í morgun sá ég að það var verið að greiða hudi inn í þvottahúsi. Þar að auki var verið að nota sléttuhár til að slétta á honum hárið. Jamm, það var verið að nota sléttuhár í hárið á hundinum!!!

laugardagur, apríl 24, 2004

Eg held ad öllum tölvum se illa vid mig. Þessi sem eg er i nuna annadhvort neitar að gera kommur fyrir ofan staina eða þa að hun gerir 2. ´´Eg skil þetta ekki?

föstudagur, apríl 23, 2004

Núna er ég bara hætt í þessu líkama sulli. Best að snúa sér að einhverju öðru í bili held ég.
Díses. Umfjöllun mín um líkaman er orðin 18 blaðsíður!!! Átjan. Held nú að ég verði að fara að stytta þetta niður. Ætlaði mér í upphafi að vera með svona 5 blaðsíður í kenningalegri umfjöllun um líkamann og ræða síðan örlítið útfrá dauðanum. En vá, ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að þetta væri svona mikið. 12 398 orð komin og þar af næstum 5000 um líkaman og tengsl hans við krufningar og list.
Annars er ég alveg að fá ógeð af þessu!

12 088

Gunnar er bestur í heimi :) Það er drungalegt veður úti, brrr
Hvert er atbeini líkamans í krufningu?

fimmtudagur, apríl 22, 2004

Tölvan sem ég sit við lifir sjálfstæðu lífi. Skrifaði 1 1/2 blaðsíðu í gær og ritgerðin mín lengdist um 5 blaðsíður. Þegar ég var búin að skrifa eina línu áðan og var að byrja á næstu, þá var ritgerðin mín komin um í 50 síður. Vá maður. Tókst samt að laga þetta og núna er ritgerðin orðin 42 síður eins og hún á að vera :)

miðvikudagur, apríl 21, 2004

11 445

Læt þetta bara duga í dag held ég. Minns er þreyttur og ætlar þess vegna að fara að horfa á sjónvarpið!
Þá er maður bara farinn að skirfa aftur, 11 299 orð komin. Takk Harpa, fyrir skilaboðin um þessa með 17 000 orð. Vonanadi verður mín samt ekki svona löng. Er að klára að skrifa um hann Foucault vin minn. Arg. Hann er samt með svolítið spennandi pælingar um krufningar og líkamann. Ætla að reyna að ljúka honum af í kvöld. Síðan klára að fjalla um líkamann á morgun og senda þennan blessaða kafla til Arnars. Vonandi finnst honum þetta skemmtilegt. Vonandi vonandi vonandi.
Núna eru Hilda og Ólöf í Kaupmannahöfn. Var að heyra að þær væru búnar að kaupa allt úr H og M og búðin væri tóm!! Ég væri nú alveg til í að vera með þeim en ég væri örugglega ekkert skemmtilegur innkaupafélagi, núna er það helsta sem mig langar að kaupa eitthvað svona íbúðadót. En manns langar nú alltaf í smá föt. Það væri ekki verra!! EN ég fæ ilmvatn þegar þær koma heim, loksins fer ég að lykta vel aftur.
Líkami hvíta karlmannsins er yfir líkama annrra hafinn. Við Gunnar eigum íbúð.

mánudagur, apríl 19, 2004

10 976 : max 4024 orð eftir.
11 001

Gymm gymm og aftur gymm.

Þeir sem eru ekki líkamsræktarnördar eins og ég ættu helst ekki að lesa þetta. EN þið megið það nú samt alveg :)
Attack var nú ekki eins frábært eins og ég hafði vonað. Það var ekki alveg nógu mikið stuð. Stóð mig að verki, geispandi með lítinn kraft í mér. Komm on, maður á ekki að hafa tíma til að geispa í attack tíma, sérstaklega þar sem kennarinn er nýbúinn að segja að attac sé eitt erfiðasta Les Mills kerfið. Það var bara enginn kraftur í mér. Og ég kenni tónlistinni um, ekki nógu kröftug tónlist, ekki nógu mikið öskrað, ekki nógu mikið stuð í tímanum. Ég var sko alveg til í hörku púl en neibb, ekkert hörku púl í dag. Ég fæ samt harðsperrur, vegna þess að ég gerði auka armbeygur, bæði 2 og 3 höfða. Rosa dugleg ég.
Kannski er spurning um að fara að mæta í Stepið aftur. Langt síðan ég hef farið í tíma hjá Unni. God, þegar ég hugsa um það þá bara verð ég að fara. Planið er að fara í diskótíma á morgun í Baðhúsinu. Unnur og Anna verða með tíman ásamt Páli Óskari. Geðveikt stuð.
Ég verð að verða orðin létt í sumar, VERÐ VERÐ VERÐ. Allt er keypt á dýru verði. Váts maður, Verða aofjaæf grenna kdfms mig. Díses er að fara ufur um... he he he
Best að fara að drífa sig af stað í Attakcið. Það verður sko tekið á því í dag. Hell je. Var samt úti að labba með hundinn áðan og síðan vorum við í smá boltaleik. Geðveikt stuð.
Niðurskurður dagsins leiddi af sér rúmlega 800 orða minnkun. Það er ágætt, en kannski ætla ég að minnka þetta enn frekar.
Horfði á Big Fish í gær. Hún er æði. Þetta er ekki spruning um sannleika, þetta er spurning um að sætta sig við hlutina eins og þeir eru og kannski bæta þá aðeins.

sunnudagur, apríl 18, 2004

11 844

Ég er að hlutsa á jon.is Þetta er fyndin síða.
Held að ég sé komin með allt of mikið af orðum fyrir ritgerðina mína. Best að fara að klippa niður.

laugardagur, apríl 17, 2004

Núna eru Ólöf og Hilda á leiðinni til Kaupmannahafnar. EN ég er komin með 600 orð um Foucault svo að þetta er allt í lagi :)
Búin með 300 orð um kauða.
12:49 Held að það sé kominn tími til að setja Foucault á blað. Hvað ætli ég verði lengi að því? Mörg hundruð klukkutíma? Þessi maður er ekkert smá leiðinleg lesning!

Nýr Fjölskyldumeðlimur

Jæja. Nú er það orðið opinbert að nýr fjölskyldumeðlimur hefur bæst í litlu fjölskylduna. Hann hefur fengið nafn: Guli Skriðdrekinn. Hann er lítill og nettur, en rosalega kraftmikill (1300 w). Prófuðum hann áðan og hann saug í sig 2 nammi án nokkurar fyrirstöðu. Svo fylgir líka flottur aukabúnaður með nýja fjölskyldumeðliminum :)

föstudagur, apríl 16, 2004

Mér finnst Foucault ekki vera skemmtilegasti maður í heiminum. Ég skil ekki alveg kenningar hans um vald og líkamann. Úff púff

Glæsilegur Föstudagsmorgunn

Núna er klukkan 10:41 á föstudagsmorgni. Hvernig veður ætli sé úti. Ég sit fyrir framan tölvuna og er að skrifa um læknisfræðilegan líkama. Ennþá á náttfötunum, ekki búin að draga frá, ekki búin að búa um rúmið. Þetta er æði. Þá get ég kannski farið að kúra mér á eftir ef að ég verð þreytt. Það er gott að vera ekki í vinnunni. Ég ætti að vera í vinnunni í dag en ég ætla að vera í fríi því að ég verð að gera ritgerð.

Gunnar minn er bestur í öllum heiminum.

Vér eigum ekki að gera oss ánægða með minna, en að læknastéttin- the noblest of all noble professions, - gangi á undan öllum öðrum! Þetta er tekið úr Læknablaðinu frá því árið 1920.

miðvikudagur, apríl 14, 2004

9 færslur á einum degi. Met

Afköst dagsins

Ég vaknaði klukkan 9 í morgun og byrjaði að læra hálftíma síðar. Ég var að læra til svona 4.30 með smá pásum. Á þeim tíma skrifaði ég 400 orð í ritgerðinni minni. Þegar ég kom úr leikfiminni og var búin að fá mér pylsu þá byrjaði ég að læra aftur. Núna er ég komin með 1400 orð um líkamann. Það þýðir að á 4 klukkutímum eftir kvöldmat skrifaði ég 1000 orð, en á 7 klukkutímum í dag skrifaði ég 400 orð. Díses. En ég er allaveganna ánægð að mér gengur vel, loksins!
Mæli eindregið með þessari síðu

Gírinn

Það er gott að vera kominn í gírinn, held að það sé 5. hjá mér núna. Það væri kannski 6. ef að ég hefði keyrt svoleiðis bíl og ef að ég væri ekki svona þreytt í augunum. En Korn klikkar ekki! Verst að ég drekk ekki kaffi. Pepsí Max verður að duga í bili.
Þegar ég skrifa ritgerðir þá eru ákveðin orð sem eru algengari en önnur. Ég á það til að vera með mjög mikið af innsláttarvillum (og reyndar líka stafsetningarvillum) en sem betur fer er ég með Púka. Eitt af því sem ég geri mjög oft er að skrifa hæutverk í staðinn fyrir hlutverk. Samfélagssins eða einstaklingssins kemur líka oft. Já, svo er það mannfærðin, gott að það sé færð í þessum mönnum :)
Ég er komið með 822 orð í dag. Jibbý ég. Ég er á góðu róli núna. Vonandi finnst ykkur skemmtilegt að lesa um árangur ritgerðarskrifta minna. Vííí
Holdlegi líkaminn er smættuð ímynd samfélagsins. Líkaminn snýr inn að valdi samfélagsins og eykur kröfur sínar gagnvart samfélaginu í beinu framhaldi af minni félagslegum þrýstingi (Csordas 1999:176).
19:33 Var að koma heim úr smá líkamsárás -Body Attack- Hörku stuð, gott að fara smá út þegar maður er að flippa á lærinu, já eða ekki lærinu. Díses, ég er ekki að meika þetta núna. Er samt komið með plan hvernig ég ætla að vinna líkamadrauginn. Ég skal vinna þessa glímu, ég skal, ég get, ég verð. Urrr. Bara að rumpa þessum kafla af og þá get ég farið í að lagfæra og bætrumbeta. Jess, ætla samt ekki að segja til hamingju, því að þetta er ekki búið enn!
Verð samt að segja frá svolitlu fyndnu. Ég var sem sagt í Attack áðan og þá fór ég að pæla í líkamanum á mér. Ég var neflilega að lesa áðan að fólk færi ekki í líkamsrækt fyrir líkaman, heldur til að uppfylla ákveðnar útlitskröfur frá samfélaginu. Að passa inn í einhvern pakka. Þetta fannst mér fyndið, og ég fór að velta því fyrir mér hvort að ég væri í Attack fyrir líkamann eða fyrir útlitið. Ég komst samt eiginlega ekki að neinni niðurstöðu... hmmm... Þegar ég var búin að lesa þetta þá las ég líka um að þegar fólk fer í líkamsrækt þá setur það á sig make up ÁÐUR en það fer í gymmið. Gymmið er ekki staður fyrir ljóta fólkið til að verða fallegt. Gymmið er staður þar sem maður á að vera fallegur áður en maður kemur þangað. Þessi staðhæfing á vel við Sporthúsið þó svo að maður sjái alltaf fólk sem kemur ómálað í asnalegum fötum til þess eins að svitna eins og svín. Sumar gellurnar sem eru í Sporthúsinu eru ekki þarna til þess að púla, þær eru þarna vegna þess að það er cool.
Núna er klukkan orðin 16:41 og ég er búin að skirfa 410 orð. Geðveikt lélegt. Arg. Ég veit bara ekkert hvað ég á að skrifa, ég er algerlega andlaus í þessu líkamadóti. Samt er þetta geðveikt áhugavert.
Hálftími liðinn og 305 orð komin. Húrra fyrir mér. Núna ætla ég að fara smá stund út í rigninguna! Sem betur fer er ekki snjór eins og í gær.

Afköst dagsins

Búin að skrifa 127 orð í dag. Glæsilegur árangur, ekki satt? Gunnar er bestur í heimi. Mig langar í eitthvað að borða. Ætli það séu til einhver góð rústykki í Bóbó? Spurning um að skella sér í einn léttan hádegisgöngutúr upp að stóru blokkunum og fara síðan í rúnstykkjaleiðangur. Spurning samt um að reyna að ná upp í 150 orð áður en ég fer út. Verð örugglegea svona hálftíma með það! Ég er SVO lengi að þessu, skrambinn hafi það.
Doppa ætlar að hitta mig í næstu viku og ræða fyrirbærafræði. Vonandi kemur Harpa líka. Gaman gaman að tala um þetta furðulega. Staða líkamans... hmm

mánudagur, apríl 12, 2004

Ég fór að sjamma á föstudaginn. Fyrst var haldið í tannlæknapartý. Þessar stelpur voru meðal gesta þar. Eftir mikla drykkju og drykkjuleiki var haldið á Hverfis, en þar var ekki stemming. Við Hilda fórum svo á Sólon og þar voru Ólöf og Anna. Martha afmælisbarn var líka á svæðinu. Til hamingju með afmælið Martha, flott mynd. Serrano var snilli. Einn bílinn sem keyrði fram hjá okkur var með sprungi að framan! Díses. Takk fyrir farið Steini.
Mér finnst alger snilld að geta verið að tala við vinkonur sínar á netinu. Áðan var ég að tala við 4 vinkonur mínar í einum glugga. Ein býr í útlöndum. Alger snilld. Næstum eins og um væri að ræða alvöru stelpnahitting. Snilli.is

Gleðilega Páska allir saman

Núna eru páskar og tími páskaeggjanna. Rosa gaman að fá páskaegg, en kannski ekki eins gaman þegar maður er búinn að hakka í sig of mikið af páskaeggjum. Páskarnir eru búnir að vera ágætir. Slappaði vel af, horfði á 2 bíómyndir: Casablanca og Reykjavík Gesthous: Rent a Bike. Bara svona þokkalegar myndir báðar tvær. Núna er ég að reyna að læra, það gengur nú bara ágætlega, enma mig langar nú meira til að vera að gera eitthvað skemmtó. Það er, meira skemmtó en að læra. Það er alveg gaman að læra og gera ritgerð. En þegar maður er búinn að vera að vinna í sama efninu í margar vikur að þá verður þetta ekki eins skemmtilegt. En það er bara stutt eftir svo að ætli það sé ekki best að halda áfram. Bless í bili amigos.

föstudagur, apríl 09, 2004

Getur verið að læknar upplifi dauðann á einhvern öðruvísi hátt en aðrir?
Ritgerðin mín bara orðin 8000 orð. Sko mína. Ja, kannski á maður eftir að klípa eitthvað af henni svona undir lokin, en þetta er allaveganna á góðri leið núna. Ég á samt eftir að skrifa um heilan helling. Núna er ég að skrifa um krufningar í Glasgow.
Líkin sem að Óttari og félögum hans í læknadeildinni var úthlutað voru stíf eftir að hafa legið í formalínbaði og kæligeymslu á vikur eða mánuði. Ekkert var manneskjulegt við þau lengur, húðin var samanskroppin og andlitin voru með herta grettu (Óttar Guðmundsson 2000:80).
Annars er ég að fara að borða Brownies núna með honum Gunna sæta

fimmtudagur, apríl 08, 2004

2 ár síðan

Fyrir tveimur árum, það er um páskana fyrir tveimur árum, var ég að spóka mig um á Grænlandi. Svaka fjör og svaka snjór. Síðan kom ég heim til Íslands aftur og borðaði mitt Páskaegg. Þegar páskaeggið hafði farið niður í maga var haldið út á djammið. Þá hitti ég hann Gunnar minn. Gunnar er bestur í heiminum og hann er kærastinn minn.
Vill einhver vera vinur minn og skrifa fyrir mig svona eins og eitt stykki BA ritgerð? Eða kannski bara hálft stykki, ég er búin með ca. helminginn!

Bryan Turner

Getur einhver bent mér á skemmtilega bók eða grein eftir Bryan Turner? Veit einhver hvort að Bryan Turner og Terence Turner eru bræður? Það er svolítið skondið að sjá einn Turnerinn vitna í hinn Turnerinn.
Allavegana þá vantar mig eitthvað eftir Bryan Turner. Plís?
Ég er búin að vera að vinna síðustu daga í Ríkinu. Hvað er málið með Íslendinga?? Ég bara spyr, af hverju vilja allir fara í Ríkið á síðustu stundu? Af hverju vill fólk fara í Ríkið á miðvikudegi fyrir páska, bara til þess að lenda í geðveikri biðröð?? Ég bara spyr. Af hverju getur fólk ekki farið í Ríkið í vikunni fyrir Páska, eða vikunni þar áður? Ég bara spyr.

mánudagur, apríl 05, 2004

Loksins er ég búin að skrifa upp viðtalið mitt við Huldu Rós í sjónrænni mannfræði. Það er gott að vera búin að skrifa þetta upp. 5700 orð, vá. Það er næstum jafn mikið og ég er búin að skrifa í BA ritgerðinni minni, VÁ. Samt var viðtalið bara einn klukkutími. Ég ímynda mér bara hvernig þetta væri ef að maður hefðu marga klukkutíma til að skrifa upp, svona eins og er svo algengt meðal mannfræðinga. Oh men. Held að ég verði að þróa einhverja nýja aðferð til að safna upplýsisngum. Eða eitthvað. Sjónræn mannfræði??? Góð hugmynd.

4 vikur í dag til stefnu

Núna er 4 vikur til lokaskila á BA ritgerðinni. Ég er ennþá bara hálfnuð. Jæja, hvernig væri þá bara að taka sér slurk og klára þetta?

sunnudagur, apríl 04, 2004

Það er hundleiðinlegt að pikka þetta viðtal inn.

Viðtal

Núna er ég að pikka inn viðtal sem ég tók við Huldu Rós. Ekki það skemmtilegasta í heimi að hlusta á lélega spólu og þurfa að spóla til baka hundrað sinnum til að hlusta aftur.
Ég er ÆÐI. Byndís lætur ekkert fara til spillis. Að drekka og ver full. Sem sagt voða fjör.

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Allt að gerast

Þessa daganna er allt að gerast. Var að taka viðtal við Huldu Rós um heimildarmyndina hennar. Ógissliga spennó. Núna liggur bara fyrir að pikka inn allt viðtalið. Oh men. Vona samt að það verði ekki eins leiðinlegt og ég er búin að ímynda mér að þetta verði.