laugardagur, nóvember 22, 2014

Opið bréf frá mér til mín

Elsku vinir
Síðustu vikur hef ég eins og aðrar vikur kíkt reglulega inn á Facebook síðuna mína. Nú er hinsvega komið að ákveðnu stoppi! Síðustu vikur hef ég lesið um:
-Nýrnahettuþreytu (þarf að segja meir??)
-Íslendinga sem vakna fyrir allar aldir (kl. 6) til að kaupa tískublómavasa (Þarf að segja meir?)
-Að lífið í Svíþjóð (og allmennt ALLSSTAÐAR annarsstaðar en á Íslandi) sé miklu MIKLU betra en á Íslandi (fólk talar bara svo oft með rassinum)
-Verkfall tónlistarkennara (mitt tónlistarsjúka eyra sem kann EKKERT á hljóðfæri vill að tónlistarmenntun á Íslandi haldi áfram)
-Verkfall lækna (heldur fólk að það sé mannsæmandi að vinna allan sólarhringinn í burtu frá börnum og búi til að hafa það gott)
-Leiðréttingu lána (sem flestir hafa eitthvað neikvætt um að segja)
-Hversu glataðir þeir séu sem taka leiðréttingunni en þurfa ekki nauðsynlega á því að halda (Halló fólk, þetta er leiðrétting)
-Brjálaða útlendinga sem vilja halda karlrembufyrirlestra á Íslandi (þarf að segja meir?)
-Fatlað fólk sem ekki fær stuðning við hæfi (þarf að segja meir?)
-Kaup ráðherra á nýjum lúxuskerrum (alveg í takti við annað í samfélaginu)
-Uppsagnir meðal eldri kvenna sem unnu við þrif (sennilegast gert til að eiga peninga fyrir lúxuskerrunum).
-Samræmd próf í íslensku sem eru samin af fólki sem ekki kann íslensku (google.translate kannski notað við gerð prófa??)

Svo má auðvitað minnast á allt það fólk sem hafði það svo slæmt í kreppunni (sem og núna) en hefur samt efni á að skreppa til útlanda oft á ári og kaupa dýra óþarfa hluti. Já eða alla leikina sem fólk spilar óspart á Facebook eða allt það prump sem kemur frá Smartlandi Mörtu Maríu.

Vegna þessa hef ég ákveðið að hætta að skoða Facebook í bili. Svona lagað getur bara ekki verið neitt agalega gott fyrir heilsuna! Eru Íslendingar virkilega orðnir svona gegnsýrðir af neikvæðni og svartsýni?? Fyrir utan það hefur Facebook síðan mín ákveður sjálf að velja það sem ég sé og sleppir mikilvægum hlut eins og þegar vinkonur mans fá verðlaun frá Háskóla Íslands!!
Þeir sem vilja ná í mig geta bara hringt í mig eða sent tölvupóst! Ps. Þeir fáu sem hafa hugsað sér að senda okkur jólakort: Við erum flutt síðan í fyrra!

Jóna, sem hefur ákveðið að vera aðeins meira brosandi næstu misserin!